
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
2. maí 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 08:46 í morgun tilkynning frá fiskibát um bjarndýr sem þeir sáu í fjörunni í Hlöðuvík. Var samstundis haft samband við Umhverfisstofnun sem og lögregluna á Vestfjörðum, auk þess var þyrla Landhelgisgæslunnar sett í viðbragðsstöðu.
Eftir samráð við ofangreinda aðila var ákveðið að senda þyrlu á staðinn með lögreglumenn innanborðs. Skv. upplýsingum frá Umhverfisstofnun hefur verið haft samband við ferðamenn sem vitað er um á staðnum en þeir sem vita um ferðir fólks á svæðinu eru beðnir um að hafa samband við þá og greina frá stöðu mála, einnig láta lögregluna á Ísafirði vita af ferðum fólks.