
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Landhelgisgæslan hefur gert samning við Vinnustaði Öryrkjabandalagsins um ræstingar í húsnæði LHG í Skógarhlíð 15. Samningurinn er hagstæður fyrir Landhelgisgæsluna og þjónustan er tryggð alla virka daga þar sem Vinnustaðir ÖBÍ sjá um allar ræstingar og afleysingar í veikindum, sumarleyfum og svo framvegis. Umsýsla vegna starfsmanna minnkar að sama skapi hjá LHG. Alls mun þessi samningur þýða 2,5 – 3 ársverk fyrir Vinnustaði ÖBÍ.
Vinnustaðir ÖBÍ hafa séð um ræstingar fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og fleiri í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð og nú bætist Landhelgisgæslan í hópinn.
Landhelgisgæslan lítur á það sem forréttindi að fá Vinnustaði ÖBÍ til samstarfs.