
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 25. maí 2011
TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, í samstarfi við björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, fann kl. 18:05 þýskan ferðamann sem leitað hefur verið að í dag. Fór þyrlan á leitarsvæðið eftir ábendingar björgunarsveita og fannst maðurinn við Háöldur sem eru austan við Hofsjökul. Var maðurinn í ágætu ástandi en orðinn svangur og þreyttur. Er þyrlan nú á leiðinni til Reykjavíkur og er áætlað að lenda við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 19:00.