
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 1. júlí 2011
Mikil umferð var á sjó í gær. Þegar mest var höfðu varðstjórar Landhelgisgæslunnar eftirlit með 964 skipum og bátum á miðunum kringum landið, jafnt togurum sem strandveiðiflotanum.
Gekk dagurinn annars vel fyrir sig enda ágætt veður fyrir utan eitt atvik þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar stóð bát að meintum ólöglegum veiðum 2 sjml. SV af Skor eða um 3,5 sjml. inni í lokuðu hólfi þar sem gildir reglugerð nr. 693/07 um bann við handfæraveiðum suður af Látrabjargi. Var bátnum vísað til hafnar þar sem mál hans verður tekið fyrir hjá embætti sýslumannsins á Snæfellsnesi.