
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 16. september 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 06:16 neyðarkall á rás 16 frá vélarvana skipi sem leki hafði komið að í miðjum Seyðisfirði. Fjórir menn voru um borð og sögðu þeir dælur bátsins hafa vel undan. Ágætt veður var á svæðinu.
Landhelgisgæslan hafði samstundis samband við sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu og fóru harðbotnabjörgunarbátar frá Seyðisfirði og Norðfirði, auk björgunarskipsins Hafbjargar frá Norðfirði til aðstoðar. Báturinn var dreginn til Seyðirfjarðar þar sem komið var til hafnar kl. 08:15.