
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 16. september 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 12:38 beiðni í gegnum Neyðarlínuna frá lækni í Vestmannaeyjum um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna manns sem slasaðist alvarlega. Vegna þoku er ekki hægt fyrir flugvélar að lenda í Vestmannaeyjum. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 12:57 og lenti í Vestmannaeyjum kl. 13:38. Farið var að nýju í loftið kl. 14:13 og lent við Landspítalann í Fossvogi kl. 14:38.