
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 6. nóvember 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 14:15 aðstoðarbeiðni frá flutningaskipinu Brúarfossi vegna skipverja sem veiktist um borð þegar skipið var statt vestan við Vestmannaeyjar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF var þá á leið til Reykjavíkur eftir að hafa tekið þátt í björgunaraðgerðum Ölmu. Kom þyrlan að skipinu kl. 15:00 og seig stýrimaður niður í skipið með börur. Búið var um manninn og hann svo hífður upp í þyrluna. Var flogið beint á Landspítalann í Fossvogi þar sem lent var kl. 15:47.