
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 14. nóvember 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 16:10 beiðni í gegnum Neyðarlínuna frá lækni í Vestmannaeyjum um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna konu í barnsnauð. Vegna svartaþoku er ekki hægt fyrir flugvélar að lenda í Vestmannaeyjum, einungis er um 100 metra skyggni. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 16:47 og lenti í Vestmannaeyjum kl. 17:38. Farið var að nýju í loftið kl. 17:52 og lent á Reykjavíkurflugvelli kl. 18:35 þar sem sjúkrabifreið beið og flutti konuna á Landspítalann.