
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 1. febrúar 2012
Nú síðdegis í dag ákvað Rolls Royce framleiðandi vélbúnaðar í varðskipinu Þór að skipinu skuli siglt til Bergen í Noregi til að ljúka megi framkvæmdum vegna óeðlilegs titrings við aðra aðalvél skipsins.
Nú þegar hefur verið hafist handa við undirbúning ferðarinnar sem væntanlega verður á allra næstu dögum. Ekki er vitað hversu lengi skipið verður frá en búast má við að það verði einhverjar vikur.
Mynd frá Rolls Royce