
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 17. febrúar 2012
Landhelgisgæslunni barst kl. 21:20 í kvöld beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð þyrlu vegna þriggja einstaklinga í sjálfheldu í Grýtutindum sem eru í vestanverðum Eyjafjallajökli. Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru einnig kallaðar út en vegna veðurs var erfitt fyrir þær að komast á staðinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 21:54 og verður hún kominn á staðinn um kl. 22:30. Eru mennirnir í ágætu ásigkomulagi en orðnir kaldir og þreyttir.