
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 20. júní 2012
Landhelgisgæslunni barst kl. 12:14 aðstoðarbeiðni frá skútu, með tvo menn um borð sem rekur í átt að landi í Meðallandsbugt, um 80-90 sjómílur suðaustur af Meðallandssfjöru.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitir á landi, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Vestmannaeyjum og á Höfn fóru til aðstoðar en aðstoðin var afturkölluð þegar mönnunum tveimur tókst að koma upp auka segli og náðu stjórn á skútunni á nýjan leik. Björgunarskipið Þór í Vestmannaeyjum mun þó halda áfram að skútunni og fylgja henni til hafnar.