
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 2. júlí 2012
Landhelgisgæslan og lögreglan hafa m.a. samstarf um umferðareftirlit úr þyrlu og var um helgina farið í eftirlit um Suðurland. Í eftirlitinu fer lögreglumaður með þyrlunni í eftirlit og annast hraðamælingar í samstarfi við þyrluáhöfn. Stuðst er við sérstakar verklagsreglur við mælingarnar.
Ökuþórum með þungan bensínfót bregður sjálfsagt í brún að vera staðnir að verki með þessum hætti og lenti einn í því um helgina að vera tekinn á 116 kílómetra hraða. Hann játaði um leið er þyrlan hafði stöðvað hann. Að sögn áhafnar þyrlunnar var þó lítið um hraðakstur og bílstjórar almennt í mestu rólegheitum.