
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 16. júlí 2012
Séraðgerða- og sprengjueyðingasvið Landhelgisgæslunnar var í sl. viku, ásamt lögreglunni í Reykjavík við eftirlit á Kollafirði á harðbotna slöngubátnum Flóka sem Landhelgisgæslan hefur í prófunum fyrir íslenska skipaframleiðandann OK Hull. Farið var um borð í farþegabáta á svæðinu, björgunarbúnaður skoðaður, farið yfir skipspappíra, lögskráningu og fleira. Flestir voru með sín mál í lagi en í einu tilviki var þörf á verulegum úrbótum. Hefur eftirlit af þessari tegund gengið mjög vel og er áætlað að því verði haldið áfram í framtíðinni.