
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 24. ágúst 2012
Landhelgisgæslunni barst kl. 07:11 í morgun tilkynning frá fiskibát sem fékk á sig brotsjó skammt NA – frá Gjögrum í Eyjafirði. Ekki urðu meiðsl á fólki en að sögn skipverja brotnuðu gluggar og siglingatækin blotnuðu. Nærstaddur bátur kom þeim til aðstoðar og fylgdi bátnum áleiðis til hafnar. Einnig var varðskipið Þór á svæðinu, fylgdist með ferðum bátanna og var til taks ef þörf hefði verið á. Ekki kom til þess og voru bátarnir komnir í höfn um klukkan hálf tíu í morgun.