
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 13. desember 2012
Landhelgisgæslunni barst upp úr klukkan sjö í gærkvöldi aðstoðarbeiðni frá togaranum Múlabergi SI 22 frá Siglufirði, vegna skipverja sem var saknað á hafsvæðinu norður af Skagafirði. Sigurvin, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Siglufirði var samstundis kallað til leitar auk þyrlu Landhelgisgæslunnar. Auk þess var haft samband við nærstödd skip og þau beðin um að taka þátt í leitinni. Varðskipið Týr kom á staðinn í nótt og stendur leit yfir en um er að ræða stórt leitarsvæði eða um 35 sjómílur.