
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 7. mars 2013
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný mánudaginn 18. mars nk með komu flugsveitar kanadíska flughersins. Alls munu um 170 liðsmenn kanadíska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með sex F-18 orrustuþotur og eina eldsneytisbirgðavél. Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum þ.e. Akureyri og Egilsstöðum frá 20. – 23. mars.
Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og er ráðgert að verkefnið verði unnið með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við samninga sem í gildi eru, því ljúki um miðjan apríl.
Myndin sýnir radarstöðina á Gunnólfsvíkurfjalli.