
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 19. mars 2013
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA sótti í gærkvöldi skipverja sem slasaðist um borð í togara sem var staðsettur um 20 sjómílur norðvestur af Grundarfirði. Beiðni um aðstoð þyrlunnar barst kl. 21:35 en þá var þyrlan við æfingar í Skjaldbreið og var strax flogið á staðinn. Komið var að skipinu kl 22:28 um 11 sjómílur norður af Ólafsvík og sigu stýrimaður og læknir niður í togarann ásamt börum og búnaði. Fór þyrlan að því loknu til eldsneytistöku á Rifi. Hinn slasaði var undirbúinn fyrir flutning og hýfður um borð í þyrluna upp úr kl. 23:00. Flogið var beint á Landspítalann í Fossvogi þar sem var lent kl. 00:16.