
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 2. maí 2013
Nýverið undirrituðu Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu, öryggissamning vegna þjónustu við ljósleiðarakerfi NATO hér á landi. Samningurinn byggir á kröfum í nýrri reglugerð nr. 959/2012 um vernd trúnaðarupplýsinga, öryggisvottanir og öryggisviðurkenningar á sviði öryggis- og varnarmála.
Míla sér um þjónustu við ljósleiðarkerfi NATO sem er rekið af Landhelgisgæslunni. Öryggissamningurinn krefst öryggisvottunar fyrirtækis. Þessi viðbót við samninga Mílu og íslenska ríkisins um eignarhald og þjónustu ljósleiðarkerfisins mun aðeins auka öryggi vegna meðferðar trúnaðargagna og er í samræmi við reglur Atlantshafsbandalagsins.