
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Laugardagur 1. júní 2013
Landhelgisgæslunni barst kl. 02:38 í nótt beiðni um aðstoð þyrlu frá Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra vegna leitar að ungri erlendri ferðakonu sem hefur ekki sést frá því hún lagði af stað um klukkan tíu í gærmorgun og ætlaði í Heydal. Búið var að svipast um eftir konunni án árangurs.
Þyrla var kölluð út og fór TF-LÍF í loftið kl. 03:18 til leitar. Leitað var í 3 ½ klst á svæðinu sem þyrluáhöfn var beðin um að einblína á og einnig hugsanleg svæði þar fyrir utan án árangurs. Ákveðið var að snúa þyrlunni til Reykjavíkur og mun lögreglan hafa samband að nýju ef nýjar upplýsingar koma fram. Fór þyrlan til eldsneytistöku á Ísafirði og lenti í Reykjavík kl. 09:04.
Mynd Gassi.