
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 5. nóvember 2013
Áhöfn varðskipsins Þórs og slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafa í morgun verið um borð í flutningaskipinu Fernöndu. Enginn eldur er sjáanlegur og er skipið að kólna.
Ákveðið hefur verið að halda eftir-slökkvistörfum áfram í dag, þ.e. hreinsun og kælingu skipsins. Á morgun, miðvikudag, verður ákvörðun tekin um framhaldið í samráði við hlutaðeigandi aðila, þ.e. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Umhverfisstofnun, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,Hafrannsóknarstofnun, Samgöngustofu, hafnaryfirvöld Faxaflóahafna og Hafnarfjarðarhöfn, lögreglu, eigendur skipsins og tryggingafélag.