
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 11. nóvember 2013 kl. 09:45
TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar er nú við flutningaskipið Goðafoss 70 sml V-af Færeyjum. Í framhaldinu mun flugvélin kanna aðstæður á flugleið þyrlna Landhelgisgæslunnar frá vettvangi að Höfn í Hornafirði.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar bíða nú áttekta á Höfn í Hornafirði og varðskipið Þór heldur áleiðis á vettvang.
Skipið heldur sjó og er ástandið stöðugt. Tekist hefur að slökkva eld um borð í Goðafossi og er nú unnið að því að kanna aðstæður um borð og ná fullu afli á aðalvél skipsins.
Flutningaskipið Arnarfell er komið að Goðafossi og færeyska varðskipið Brimill er á leið á vettvang og áætlar að vera hjá Goðafossi kl.13:30.