
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 15. desember 2013 kl. 20:15
Landhelgisgæslunni barst kl. 18:25 aðstoðarbeiðni frá flutningaskipinu Alexia sem var að koma inn til hafnar á Reyðarfirði. Skipverja var saknað og talið hugsanlegt að hann hefði fallið fyrir borð. Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu voru samstundis kölluð út til leitar. Auk þess var haft samband við nærstödd skip og þau beðin um að taka þátt í leitinni. Mjög slæmt veður er á svæðinu og stórt leitarsvæði.
Leitin hefur ekki borið árangur og var ákveðið í samráði við lögreglu og bakvakt Slysavarnarfélagsins Landsbjargar að fresta leitinni til morguns.