
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 21. apríl 2014
Fiskibátur úti fyrir Vestfjörðum hafði samband við Landhelgisgæsluna kl. 18:27 í kvöld og óskaði eftir aðstoð vegna leka sem hafði komið upp í vélarrúmi. Tveir menn voru um borð. Landhelgisgæslan hafði samband við nærstaddan bát og var hann beðinn um að halda til aðstoðar. Einnig voru björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu kallaðar út ásamt björgunarbátnum Gunnari Friðrikssyni á Ísafirði og hraðskreiðum björgunarbát frá Suðureyri. Þyrla Landhelgisgæslunnar var auk þess kölluð út.
Klukkan kl. 18:55 hafði tekist að þurrlensa vélarrýmið og var þá hættuástandi aflýst. Nærstaddur bátur kom skömmu síðar til aðstoðar og dró fiskibátinn til hafnar. Voru þá allar björgunaraðgerðir afturkallaðar.