
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 5. maí 2014
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju mánudaginn 12. maí nk. með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 220 liðsmenn taka þátt í verkefninu, þar af um fimmtán manns á Akureyri þar sem staðsettar verða þotugildrur og flugviti. Flugsveitin kemur til landsins með F-15 orrustuþotur, C-130 björgunarflugvélar, ásamt eldsneytisbirgðavél.
Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og hugsanlega Egilsstöðum 14.-16. maí nk.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og samninga sem í gildi eru. Ráðgert er að verkefninu ljúki í byrjun júní.