
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Laugardagur 7. júní 2014
Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið til Reykjavíkur úr öðru útkalli dagsins og er áætlað að hún lendi við Landspítalann í Fossvogi kl. 20:20 með göngumann sem örmagnaðist á leið sinni niður af Hvannadalshnjúk. Björgunarfélagið á Höfn og Björgunarsveitin Kári í Öræfum voru einnig kallaðar út. Þyrlan kom á slysstað rétt fyrir klukkan 19:00.
Þyrlan sótti manninn strax í framhaldi af því að hafa verið kölluð út til að sækja ferðamenn sem slösuðust annars vegar á Snæfellsjökli og hins vegar nærri Löngufjörum.