
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Laugardagur 7. júní 2014
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var nýlent eftir annað útkall dagsins þegar þriðja útkallið barst um kl. 21:00. Fisflugvél hafði brotlent við Hafnfjarðarey á Löngufjörum á Snæfellsnesi. Þar sem áhöfnin var nýlent leið ekki langur tíma þar til farið var að nýju í loftið, eða kl. 21:06. Flogið var beint á slysstað og lent á Löngufjörumn kl. 21:30.
Flugmaðurinn var undirbúinn til flutnings og að því loknu fluttur um borð í þyrluna sem flaug með hann beina leið á Landspítalann í Fossvogi þar sem var lent kl. 22:13. Maðurinn var með meðvitund og var líðan hans stöðug meðan á flutningnum stóð.