
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 2. júlí 2014
Landhelgisgæslan fékk nýverið heimsókn frá austurrískri sjónvarpsstöð sem var hér á landi við upptökur á vísindaþætti sem fjallar um rannsóknir Hannesar Petersen þyrlulæknis hjá Landhelgisgæslunni. Hannes hefur um skeið unnið að rannsóknum sem tengjast sjóveiki og hegðun hvala.
Sjónvarpsfólkið fylgdi Hannesi eftir og verður í þættinum fjallað um störf og rannsóknarvinnu hans hjá Landspítalanum og Landhelgisgæslunni. Þátturinn er tekinn upp í miklum myndgæðum og reynt er að hafa myndsjónarhornin sem flest og áhugaverðust. Gert er ráð fyrir að þátturinn verði sýndur í haust og það verði hægt að nálgast hann á netinu.
Hér er stikla úr þættinum „Fjársjóður framtíðar“ frá árinu 2011 sem einmitt fjallar um þetta efni.