
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 22. ágúst 2014
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN lenti við Landspítalann klukkan 16:16 með tvo slasaða einstaklinga en þyrlan hefur þá sinnt þremur útköllum frá því um hádegi.
Fyrsta útkallið barst kl. 12:16 þegar kona slasaðist þegar hún féll af hestbaki við Þórukot í Víðidal og lenti þyrlan með hana við Borgarspítalann um kl. 14:30. Klukkan 14:39 var þyrlan kölluð út að nýju vegna vélsleðaslyss í austanverðum Langjökli og klukkan 14:53 barst síðan útkall vegna vélhjólaslyss á Kjalvegi. TF-SYN fór í öll útköllin og sem fyrr segir lenti hún við Landspítalann upp úr klukkan fjögur.
Mynd Baldur Sveinsson.