
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 2. október 2014
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju fimmtudaginn 9. október nk. með komu flugsveitar tékkneska flughersins. Alls munu um 80 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C Gripen orrustuþotur.
Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 10. – 17. október.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og samninga sem í gildi eru. Ráðgert er að verkefninu ljúki í desember.
Myndin sýnir ratsjárstöðina á Bolafjalli.