
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 16. október 2014
Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi voru kallaðar út í kvöld eftir að tilkynning barst um neyðarblys á svæðinu. Björgunareiningar voru síðan afturkallaðar þegar í ljós kom að um var að ræða kínverskt ljósker.
Landhelgisgæslan brýnir fyrir þeim sem hafa í huga að senda upp slík ljósker að láta lögreglu vita um stað og tímasetningu til að viðbragðsaðilar séu upplýstir en Landhelgisgæslan verður að kanna hverja tilkynningu sem berst um neyðarblys á lofti.
Sjá grein á Mbl.is frá sl. ári um slík ljósker
Mynd Mbl.is