
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 27. nóvember 2014
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA var í gærkvöldi við æfingar með Verði, björgunarskipi og bátum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði. TF-GNA flaug frá Reykjavík kl. 18:50 og við komuna á Patreksfjörð sigu kafari frá Landhelgisgæslunni og þyrlulæknir um borð í björgunarskipið. Í æfingunni voru framkvæmdar samtals 14 hífingar úr sjó, frá skipi og björgunarbát björgunarsveitarinnar. Að æfingu lokinni var flogið til Reykjavíkur þar sem lent var kl. 21:50.