
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 19. janúar 2015 kl. 15:30
Landhelgisgæslunni barst kl. 05:44 í morgun tilkynning um vélarbilun frá gámaflutningaskipinu Horst B sem var staðsett um 25 sjómílur VSV af Reykjanestá. Skipið gat þrátt fyrir bilunina haldið 3-5 hnúta ferð og stefnir skipið nú í aðskildar siglingaleiðir N af Garðskaga. Varðskipið Þór verður til taks við Garðskaga þegar skipið heldur inn í Faxaflóa og hefur Landhelgisgæslan átt samráð við Samskip og skipstjóra Horst B. varðandi það.