
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Nú rétt rúmlega fjögur í dag óskaði lögreglan á Selfossi eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna vélsleðaslyss suður af Hlöðufelli. Fór þyrlan TF-LIF í loftið aðeins rúmum tuttugu mínútum síðar og lenti við slysstað kl. 17.11. Slæmt skyggni var á staðnum.
Vel gekk að koma hinum slasaða um borð og var flogið af stað áleiðis til Reykjavíkur rétt rúmum fimm mínútum síðar. Þyrlan lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 17:38.