
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF fór nú rétt fyrir klukkan þrjú í dag í loftið til að sækja slasaðan sjómann til Djúpuvíkur á Ströndum. Hinn slasaði er ekki í lífshættu en engu að síður var það mat þyrlulæknis að nauðsynlegt væri að sækja manninn.
Áætlað er að þyrlan verði komin á vettvang innan klukkustundar. Veðuraðstæður á staðnum eru ágætar.
Frétt uppfærð: TF-LIF lenti með sjúklinginn við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 17:36.