
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Áhöfnin á þyrlunni TF-LIF sótti í dag ársgamalt barn til Vestmannaeyja en læknir í Vestmannaeyjum hafði metið það nauðsynlegt að koma barninu sem fyrst á sjúkrahús í Reykjavík. Vegna veðurs var ófært fyrir sjúkraflugvél og var því óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Fór þyrlan í loftið frá flugskýli Landhelgisgæslunnar rétt rúmlega 14:00 í dag. Gekk flugið vel og lenti þyrlan við flugskýli Landhelgisgæslunnar tæpar tuttugu mínútur í fjögur þar sem sjúkrabíll var tilbúinn til að flytja barnið á Landspítala Háskólasjúkrahús.