Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast

7. apríl, 2015

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju mánudaginn 13. apríl með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 200 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-15 orrustuþotur og eina KC-135 eldsneytisbirgðaflugvél.  

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 15. – 17. apríl.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki um miðjan maí. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Fleiri Fréttir