
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju fimmtudaginn 23. júlí með komu flugsveitar tékkneska flughersins. Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center).Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C orrustuþotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 25. – 29. júlí.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að þessu verkefni ljúki 27. ágúst en þá kemur til landsins flugsveit danska flughersins. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands.