
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Umfangsmikil leit hófst í gær að frístundaveiðibát sem gerður er út af sunnanverðum Vestfjörðum. Báturinn sem leigður er til erlendra ferðamanna til sjóstangveiða hvarf úr sjálfvirku tilkynningarskyldukerfi Landhelgisgæslunnar upp úr klukkan 16:00. Ekki náðist samband við bátinn og var þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar ásamt björgunarskipi Landsbjargar og nærstöddum bátum. Rétt fyrir klukkan 18:00 skilaði svo báturinn sér heill á húfi til hafnar.