
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Landhelgisgæslunni barst nú í morgun beiðni frá dönskum yfirvöldum gegnum Landspítalann um sjúkraflug til Danmerkur með ungt barn frá Grænlandi sem koma þurfti skjótt undir læknishendur í Danmörku. Barnið hafði verið flutt til Íslands frá Grænlandi í gær.
Brást Landhelgisgæslan skjótt við og var þegar kölluð út áhöfn af frívakt á flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF en flugvélin snéri heim í gær frá Grikklandi eftir þriggja mánaða dvöl á Grikklandi og Ítalíu við landamæraeftirlit fyrir Frontex, Landamærastofnun Evrópusambandsins.
Lagði TF-SIF af stað áleiðis til Danmerkur um þrjúleytið í dag. Sækist ferðin vel og er áætluð koma til Danmerkur rúmlega 21:00 í kvöld. Mun vélin þá snúa strax til baka og er hún áætluð til Íslands í nótt.