
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um kl. 16:00 neyðarkall frá strandveiðibát um 15 sjómílur vestur af Blakksnesi en eldur hafði þá komið upp í bátnum. Einn maður var um borð og var honum bjargað um borð í nærstaddan bát. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send áleiðis en þegar ljóst var að búið var að bjarga manninum var henni snúið við. Björgunarskip frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg hefur verið sent á vettvang til að freista þess að slökkva í bátnum og draga hann í land.