
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Danski flugherinn tekur við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland, mánudaginn 1. september næstkomandi. Alls munu um 60 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 2. – 4. september.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki 2. október. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands.