
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um hálfsjö í kvöld beiðni um að þyrla yrði send í sjúkraflug til Vestmannaeyja þar sem ófært var fyrir sjúkraflugvél vegna slæms skyggnis.
Flaug þyrlan TF-GNA af stað stuttu síðar. Skýjafar var ágætt á leiðinni en lágskýjað á flugvellinum í Vestmannaeyjum og þykkur þokubakki. Af þeim sökum var lent vestast á eyjunni og kom sjúkrabíll með sjúklinginn sem fluttur var um borð í þyrluna. Var flogið með sjúklinginn til Reykjavíkur og gekk flugið vel.