
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni frá lögreglunni á Hvolsvelli nú rétt fyrir þrjú í dag um aðstoð þyrlu vegna þriggja ferðamanna sem voru í sjálfheldu á Eyjafjallajökli.
Fór þyrlan fljótlega í loftið og var komin á svæðið rúmlega fjögur. Lágu fyrir upplýsingar um að ferðamennirnir væru vel búnir en kæmust ekki leiðar sinnar.
Þyrlan kom ferðamönnunum þremur til bjargar en þá voru þeir orðnir heldur kaldir og blautir en í lagi að öðru leyti. Flutti þyrlan ferðamennina á Hellu.