
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rétt rúmlega tíu í kvöld beiðni um þyrlu vegna sjúklings á Patreksfirði sem koma þarf undir læknishendur í Reykjavík. Vegna veðurs var ekki fært fyrir sjúkraflugvél og því óskað eftir að Landhelgisgæslan annaðist um málið.
TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar er nú farin í loftið og er áætlað að hún lendi á Patreksfirði um klukkan 23:45. Mun hún svo flytja sjúklinginn á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta er þriðja sjúkraflug þyrlunnar síðastliðin sólarhring.