
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um hálfníuleytið í kvöld beiðni frá Neyðarlínunni um að þyrla færi til Vestmannaeyja til að
sækja sjúkling og flytja hann til Reykjavíkur. Vegna
þoku og rigningar var ekki unnt að senda sjúkraflugvél eftir honum
Þyrlan TF-GNA fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 21.17, hún lenti svo á flugvellinum í Vestmannaeyjum laust fyrir klukkan tíu.
Skömmu síðar hélt þyrlan svo til baka og lenti hún á Reykjavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan ellefu. Þar beið sjúkrabíll sem flutti sjúklinginn á Landspítalann.