

Sjávarfallatöflur fyrir árið 2018 eru komnar út. Sjávarfallaalmanak fyrir árið 2018 er sömuleiðis komið út. Sjávarfallatöflurnar hafa að geyma sjávarfallaspá fyrir Reykjavík, Ísafjörð, Siglufjörð, Djúpavog og Þorlákshöfn.
Landhelgisgæslan ber ábyrgð á sjómælingum og útgáfu sjókorta fyrir Ísland. Jafnframt því að sjá sjófarendum við Ísland fyrir sjókortum eru ýmis sjóferðagögn gefin út, svo sem sjávarfallatöflur.



Efst: Sjávarfallaalmanak fyrir fyrstu daga ársins 2018 í Reykjavík. Í miðið: Sjávarfallatafla fyrir fyrstu daga ársins 2018 í Reykjavík. Neðst: Sjávarfallakúrfan í janúar.
Landhelgisgæslan stundar sjómælingar og gefur um áttatíu sjókort, sem bæði eru prentuð og einnig gefin út á rafrænu formi.
Samkvæmt reglum um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa þarf sérhvert skip að hafa nýjustu útgáfu nauðsynlegra sjókorta um borð.
Söluaðilar sjókorta og annarra útgáfa þeim tengdar eru:
Höfuðborgarsvæðið: Víking Björgunarbúnaður ehf., Íshellu 7, 221 Hafnarfjörður. Sími: 551 5475 / 544 2270 Fax: 544 2271 kgud@viking-life.com
Akureyri: Gúmmíbátaþjónusta Norðurlands, Draupnisgötu 3, 603 Akureyri. Sími: 462 6040 GSM: 898 3366 Fax: 461 1790 gummibatar@tpostur.is