

Skipstjóri á erlendu fiskiskipi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gær vegna slyss sem varð um borð og óskaði eftir aðstoð við að flytja einn úr áhöfn skipsins á sjúkrahús í Reykjavík. Skipið var þá statt um 370 sjómílur suðvestur af landinu sem er töluvert utan drægi þyrlna landhelgisgæslunnar.
Skipstjórinn var beðinn um að sigla í átt að Íslandi og þegar í stað var hafist handa við að skipuleggja flugið svo koma mætti manninum undir læknishendur. Þegar skipið nálgaðist íslenska efnahagslögsögu í nótt var áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar, kölluð út auk þyrlusveitar.
Hlutverk flugvélarinnar í útkalli sem þessu er m.a. að athuga hagkvæmustu flugleið og aðstoða við að miðla samskiptum þegar verkefni fara fram svo langt frá landi.
TF-SIF tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan sjö í morgun og áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, hóf sig til flugs tæpri klukkustund síðar. Flug þyrlunnar tók um eina og hálfa klukkustund og hífingar fóru fram tæpum 200 sjómílum suðvestur af landinu.
Að þeim loknum var flogið með skipverjann til Reykjavíkur og lent við Landspítalann í Fossvogi.
Útkallið gekk afar vel en þetta er með lengri björgunarflugum þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á síðustu árum.

