Áhöfnin á Þór kvaddi Akureyri með því að ræsa slökkvibyssurnar

20. apríl, 2026

Áhöfnin á varðskipinu Þór kvaddi Eyjafjörð með tilkomumiklum hætti á laugardag með því að æfa notkun á slökkvibúnaði skipsins. Um borð í skipinu má finna svokallaðar FiFi slökkvibyssur sem eru ákaflega afkastamiklar en alls geta þær dælt um 3200 rúmmetrum af sjó á klukkustund.

Tilgangurinn með æfingu sem þessari er að viðhalda þjálfun áhafnarinnar og kanna virkni búnaðarins. Dælurnar eru öflugar og knúnar áfram af aðalvélum skipsins og því er heildarafl þeirra um 12000 hestöfl.

Æfingin gekk vel en mikilvægt er að áhöfnin geti brugðist við ef eldur kemur upp í skipum líkt og gerðist árið 2013 þegar flutningaskipið Fernanda brann en þá voru slökkvibyssurnar notaðar. Að auki er hægt að nota úðakerfi skipsins við slökkvistörf í landi ef eldur kemur upp nálægt hafnargörðum. Úðararnir gera skipinu kleift að komast að eldinum en þeir hylja skipið nær alveg meðan á slökkvistarfi stendur.

Landhelgisgæsla Íslands þakkar fyrir frábærar móttökur á Akureyri um helgina en á þriðja þúsund manns heimsóttu skipið í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar í ár.

Takk fyrir okkur!

Meðfylgjandi myndir tóku Hilmar Friðjónsson og Ármann Hinrik.

Fleiri Fréttir