Æft með Færeyingum og Bretum djúpt suðaustur af landinu

22. apríl, 2026

Dynamic Mercy, árleg leitar og björgunaræfing Íslendinga, Færeyinga og Breta fór fram á hafsvæðinu djúpt suðaustur af landinu í gær. Æfingin gekk út á að samhæfa viðbrögð við skipskaða á svæðinu.

Fyrir hönd Landhelgisgæslunnar tók varðskipið Þór þátt á æfingunni ásamt áhöfninni á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, auk varðstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð. Þá tók færeyska varðskipið Brimill þátt, P8 kafbátarleitarflugvél frá Bretlandi sem og varðstjórar í björgunarmiðstöðinni í Stornoway í Skotlandi.

Æfingin gekk afar vel fyrir sig og þátttakendum æfingarinnar gekk vel að finna björgunarbáta og dúkkur sem hafði verið komið fyrir í sjónum.

Æfing sem þessi er sérlega mikilvæg til að stilla saman strengi þeirra sem annast leitar- og björgunarmál á Norður-Atlantshafi.

Fleiri Fréttir