Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar haft í nógu að snúast

28. júní, 2018

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tvívegis í morgun neyðarkall með stuttu millibili vegna elds um borð í strandveiðibátum.

28.06.2018 Kl: 15:20

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur haft í nógu að snúast það sem af er degi. Landhelgisgæslunni barst tilkynning laust fyrir
klukkan ellefu í morgun um að eldur væri laus í strandveiðibáti sem staddur var
á veiðum úti fyrir Patreksfirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þegar í stað
kölluð út ásamt björgunarbátum á svæðinu. Að auki voru bátar í grenndinni beðnir
um að halda á staðinn. Skömmu síðar var ljóst að engin hætta væri á ferðum og
því var aðstoð viðbragðsaðila afturkölluð. Báturinn sigldi fyrir eigin
vélarafli til Patreksfjarðar.

Einungis tæpum tuttugu mínútum síðar, klukkan 11:16, barst annað
neyðarkall frá strandveiðibáti og aftur var tilkynnt um eld um borð. Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar kallaði þyrluna út enn á ný. Báturinn var á veiðum nærri
Grímsey en sá sem var um borð náði sjálfur að slökkva eldinn. Aðstoð þyrlunnar
var afturkölluð og báturinn sigldi fyrir eigin vélarafli til Grímseyjar.

Á öðrum tímanum í dag barst beiðni um aðstoð frá vélarvana
báti sem staddur var úti fyrir Seyðisfirði. Björgunarsveitin á Seyðisfirði var
kölluð út og er komin á staðinn. Þá barst sömuleiðs tilkynning frá vélarvana báti úti fyrir Patreksfirði skömmu fyrir klukkan 15 í dag. Stjórnstöðin hafði samband við nálæga báta og hélt einn til aðstoðar. Sjósókn er nokkuð góð en um 500 skip og bátar eru nú í fjareftirlitskerfum Landhelgisgæslunnar.